föstudagur, október 07, 2005

1. Umferð, gisk meðlima

Fyrst umferð HIT er orðin að veruleika. Tillögur manna að úrslitum má sjá hér að neðan.

Nokkrir leikir eru "dauðir leikir" þ.e. við giskum allir á það sama. Það eru leikir nr 2,6 & 7. Það er auðvitað visst klúður hjá veljanda leikjanna en hann hefur það þó sér til málsbóta að það er ekki mikið úrval leikja á sovna landsleikja helgum.
Árni bjargar leik númer 4 og stendur með sínum mönnum í sviss (spurning hvort menn séu farnir að taka Hattrick of alvarlega?)

Ekkert hefur enn heyrst af Hjalta og þurfum við snarlega að ráða bót á því máli.

Einar og Atli gleyma að tvítryggja 1 leik eins og þeir hafa kost á, þeir geta enn laumað tvítryggingunni inn snögglega. Við getum ekki verið alveg stífir á reglunum svona til að byrja með. Við erum allir aðeins ryðgaðir.

Ingimundur og Örvar eru mjög samstíga að þessu sinni, Ingimundur skilaði sínu giski inn í tölvupóst á undan Örvari sem gerði það á netinu. Sé því ekki neina ástæðu til að gruna þá félaga um græsku.

Enginn gestatyppari er að þessu sinni og biðst ég forláts á því. Það er óviðunandi. En eins og ég segi, við erum allir ryðgaðir í þessu og smá tími sem fer í að koma sér af stað.

Örvar bauðst til að halda utan um skorin og er það vel.

Nú er bara að bíða og sjá hvernig þetta fer.

Gigalo út.

2 Comments:

Blogger Örvar said...

Hvernig er það má skrifa undir Gigalo þegar þú heitir svo Gaui&Tobba?
Þetta er alveg að rugla mig...

7/10/05 14:52  
Blogger Longbottom said...

Ég vil endilega henda inn tvítryggingunni minni; set útisigur á Svía! Króatía-Svíaveldi 12

7/10/05 15:35  

Skrifa ummæli

<< Home