Úrslit viku 1
Þá liggja úrslit helgarinnar fyrir:

Nokkuð einsleitt hjá okkur eins og við var að búast...
Atli var seigur að ná Skotland - Hvíta Rússlandi rétt, og bjarga þar með heiðri félagsins, en að sama skapi alveg kaldur úti í leik Belgíu og Spánar.
Ingimundur og Örvar deila sigrinum að þessu sinni með sínar einsleitu spár.
Engin var með leik Sviss og Frakklands réttan sem er skömm fyrir félagið. Flestir skynsamir menn typpuðu á Frakkana en Árni ofmat aðeins mátt Svissaranna.
Að lokum langar mig til að benda ykkur á þetta. Hér getur maður séð alla fótboltaleiki sem sýndir eru frítt á netinu í beinni. Enski, þýski, spænski, ítalski, landsleikir þulirnir eru reyndar japanskir en þetta svínvirkar, góð gæði og vel áhorfanlegt
Hvernig viljið þið svo hafa stigagjöfina?

3 Comments:
Ég vitna bara í Árna:
Sæti - Stig
1. 10
2. 6
3. 4
4. 3
5. 2
6. 1
7. 0
Og maður færðist alltaf í þann hóp sem var lægra settur, þ.e. ef maður er í
3.-5. sæti fá allir í þeim hópi aðeins 2 stig.
Þannig fá ég og Ingimundur 6 stig og allir hinir 1 nema Hjalti sem fær 0...
Mér lýst áægtlega á þessa stigagjöf.
Hver er að reyna að hafa upp á Hjalta?
Verður Ingimundur ekki að velja næstu leiki ef ekki næst í kauða?
Jú Ingimundur verður að velja leiki. Hvernig var aftur reglan með að velja leiki. Eigum við að segja hádegi á miðvikudögum?
Árni manstu þú það?
Skrifa ummæli
<< Home