Leikir helgarinnar
Jæja nú ætla ég að flækja málin aðeins...
1. Wigan v Arsenal (1-0)
2. Charlton v Man Utd (1-0)
3. Chelsea v Newcastle (0-1)
4. Liverpool v Portsmouth (0-1)
5. Man City v Blackburn
6. Sunderland v Aston Villa
7. West Brom v Everton
8. Birmingham v Bolton
Ég setti alla leiki stórliðana í enska boltanum inn á seðilinn (Árni: Wolves er ekki stórlið)... en til að koma í veg fyrir að leikirnir verði "dauðir" set ég inn forskot á fyrirfram sterkari aðilann.
Til þess að leikur 1 fái táknið 2 verður Arsenal að vinna með 2 mörkum ef Arsenal vinnur með 1 marki fer leikurinn x... ætla ekki einu sinni að skýra það út ef arsenal gerir jafntefli eða tapar því það er ekki að fara að gerast...
Vona að þetta verði til þess að leikirnir verði meira spennandi, og treysti því að þið skiljið þetta...
Gangi ykkur vel...
kv
Gaui

28 Comments:
Þú hefur svona massíva trú á þínum mönnum að þú gefur þeim forskot?
Hvað finnst mönnum um þetta kerfi?
Skiljið þið þetta svona þannig?
a ekki fyrsti leikurinn ta ad vera svona ??:
Wigan v Arsenal (1-0)
Eg tel mig nu ekkert serlega tregann og skil alveg hvad gaui er ad meina nema med tennan fyrsta leik.
Eg er nu hrifnari af einfoldum adferdum sem hafa virkad hingad til.
Ég samþykki þessa breytingu ekki, verður þetta ekki að fara í nefnd?
Þetta gerir það að verkum að maður þarf einnig að fara spá í markatölu, það er bara orðið of flókið fyrir mig...þó svo ég skilji nú alveg hvert Gaui er að fara með þessu.
já thad eru aldeilis nýjungagirndin sem fær hér ad njóta sín... tad má kannski prófa thetta, thó ad sé kannski verid ad flækja thetta óvenju mikid... getur allavega ekki ordid mikid verra hjá mér uppúr thessu!
Æ, farið ekki að grenja... :-)
Róttækar breytingar hafa nú sjaldan farið hljóðlega í gegn...
Ég vildi bara prófa þetta svona til að koma í veg fyrir hinasvokölluðu "dauðu" leiki þar sem allir tippa eins!
Vissulega eru jafnir og spennandi leikir í öðrum deildum Evrópu en mig langaði að halda mig við enska boltann.
Frétti að Hjalti hefði einnig valið leiki fyrir helgina og hann sé tilbúinn með þá.
Það væri kannski ráð að nota hans leiki þessa helgi ef að óánægjan heldur áfram...
Bíðum spenntir eftir fleiri skoðunum...
Ég á ekki orð... Úlfarnir spila á föstudaginn þannig að ég skil þá ákvörðun Gaua að sleppa þeirri mögnuðu viðureign. Ég hef séð þessa aðferð sem Gaui beitir á Lengjunni en hef aldrei þorað að giska á þá leiki. Mér finnst þetta hálf pöddsaraleg breyting og er ekkert voðalega hrifin af henni, en sé samt ekki ástæðu til að beita neitunarvaldi.
Ég fékk samt tár í augun, ekkasog og titrandi þumalputta þegar ég kom auga á að Gaui sleppir leik helgarinnar: El Clasico!!! Ég gef því hér með sjálfstæða spá fyrir þann leik: r.madrid 0-5 Barcelona (Eto'o 3, Ronaldinho 1, Messi 1). Beckham fær rautt fyrir fautaskap.
hvað finnst mönnum annars um þetta: http://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=1819
Ekta eða fake?
kannski einu sinni en fjórum sinnum í röð er fullmikið til að vera satt!
ég skal éta heila kókómjólk ef að Ronaldinho hefur "í alvörunni" gert þetta !! um það bil engar líkur á því...
en ætlar herra Björnsson ekkert að breyta leik 1 ?? eigum við ekki annars að halda okkur við þessa leiki, þar sem að Gaui hefur greinilegt lagt mikla vinnu við að þróa þetta kerfi!!
ég er annars tilbúinn að veðja aukalega upp á einn Guinness við þig Arno; um að strákarnir hans Franco klári sjálfstæðissinnana frá Katalóníu.. og það þrátt fyrir að Woodgate sé ennþá meiddur!!
er til i ad profa tetta nyja kerfa fyrir tessa umferd en eigum vid ekki ad halda okkur svo vid gamla kerfid i framhaldinu?
Mikið þykir manni nú leiðinlegt að heyra að verið sé að rengja Ronna minn, hann spilar fyrir mætan klúbb í hinni erfiðu Primera Division og það sem hann sýnir í myndbandinu er bara í stíl við alla umgjörð á Camp Nou.
Auðvitað er þetta ekta.
Ok prófum þetta núna en þetta er lúmskuleg aðferð hjá Gaui til að ná í rassinn á fremasta manni...
Ég skal éta á mér aðra höndina ef þetta er ekki fake hjá honum meistara Ronnie...no disrespect eins og þeir segja...
Ætla menn ekkert að tippa, ég og Atli erum einu sem erum búnir að tippa...
Set þetta inn áður en ég hætti í vinnunni í dag...
Vid getum haft tetta svona nuna en eftir tad halda i gamla goda systemid. Leik 1 hefur enn ekki verid breytt svo eg hef tvær utgafur af honum.
Wigan v Arsenal (0-1) 2
Wigan v Arsenal (1-0) X
Charlton v Man Utd (1-0) 12
Chelsea v Newcastle (0-1) 1
Liverpool v Portsmouth (0-1) 1
Man City v Blackburn 1
Sunderland v Aston Villa 2
West Brom v Everton 2
Birmingham v Bolton 2
Ég þekki Ronaldinho minn aðeins sem heiðarlegan og friðelskandi mann. Sannleikurinn er ein hans helsta dyggð og er þó af nógu að taka. Tek undir með Sí-atla, þetta bara hlýtur að vera satt! En nóg um það, leikir helgarinnar munu fara á eftirfarandi hátt:
1. Wigan v Arsenal (0-1) 2
2. Charlton v Man Utd (1-0) 1
3. Chelsea v Newcastle (0-1) 1
4. Liverpool v Portsmouth (0-1) X
5. Man City v Blackburn 1X
6. Sunderland v Aston Villa 2
7. West Brom v Everton 2
8. Birmingham v Bolton 2
Mitt tipp miðast við að Wigan - Arsenal sé (1-0) þeas Wigan eigi eitt mark á Arsenal.
Erum menn ekki almennt að tippa eftir því, efast um að Gaui hafi látið Arsenl menn fá forskot á Wigan...hlýtur bara að vera öfugt...
Ef þetta er (0-1) þá set ég 2 líka...
Já það er rétt hjá ykkur strákar, Wigan á auðvitað að fá forskot á Arsenal. Búinn að laga þetta, takk fyrir ábendinguna.
Hér kemur mitt gisk...
1. Wigan v Arsenal (1-0) x
2. Charlton v Man Utd (1-0) 2
3. Chelsea v Newcastle (0-1) 1x
4. Liverpool v Portsmouth (0-1) x
5. Man City v Blackburn 1
6. Sunderland v Aston Villa x
7. West Brom v Everton 1
8. Birmingham v Bolton 2
Jæja ljúfarnir mínir; hér er tippið mitt!
1. Wigan v Arsenal (1-0) 1
2. Charlton v Man Utd (1-0) 1
3. Chelsea v Newcastle (0-1) X
4. Liverpool v Portsmouth (0-1) 1
5. Man City v Blackburn 1
6. Sunderland v Aston Villa X
7. West Brom v Everton 2
8. Birmingham v Bolton 12
kv. Einsó
1. Wigan v Arsenal (1-0) X
2. Charlton v Man Utd (1-0) 2
3. Chelsea v Newcastle (0-1) 1X
4. Liverpool v Portsmouth (0-1) X
5. Man City v Blackburn 1
6. Sunderland v Aston Villa 1
7. West Brom v Everton 2
8. Birmingham v Bolton 2
Árni, fæ ég ekki tvo góða gúlpa af guinnesnum?
Jú, Atli. Þú getur stólað á það.
Af hverju fær Atli rétt í leik Birmingham og Bolton en ekki við hinir??? Leiknum var frestað!
Tómt rugl, allt í tjóni... Svarta þoka..
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1169792
Hvað fannst ykkur svona eftir á um leiki helgarinnar.. er þetta "forskots-dæmi" alveg út úr kú?
Giskið var allavega fjölbreyttara en venjulega...
Síðan líka aldrei verið virkari, þetta er 23 kommentið...
Bara tékka hvort þið væruð ekki að fylgjast með...;)
Hvað eigum við að gera í þessum málum. Eigum við að draga eða bíða með úrslit þessa umferðar?
Þá legg ég til að bæta inn í reglur félagsins að ekki megi gefa öðru liði forskot og einnig að leikir eiga að vera á laugar- og sunnudögum, hvað finnst ykkur um það?
mér finnst að Birmingham-Blackburn leikurinn eigi að þurrkast út og frestaðir leikir í framtíðinni.
Frestuðum leikjum getur verið frestað í marga daga og jafnvel vikur og það er alltof mikið vesen.
forskotsdæmið er svo allt of létt :-))
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tipp-leikjum HIT er frestað og þá hafa þeir umsvifalaust verið látnir niður falla. En ég er sammála Örvari um að leikirnir séu um helgina... Ég hélt reyndar að það hafi einhverntíma verið samþykkt á löglegum fundi félagsins.
Ég held að þegar ég valdi leikina þá hafi hann verið á sunnudeginum, svo var hann færður yfir á mánudag.
Gæti samt verið að ég hafi ruglast.
Skrifa ummæli
<< Home