þriðjudagur, október 18, 2005

3. Umferð

Þar sem ekki næst í Hjalta kem ég með næstu leiki.

Þá er ég búinn að setja á netið excel skjalið sem við munum nota í að fylgjast með úrslitum og stigum okkar í HIT.
Heimasíðan er hérna: http://orvar.topcities.com/hit.htm
Allir að setja hana í favorites.

En næstu leikir eru mjög spennandi. Þar sem ég verð á leik Fulham - Liverpool gat ég bara ekki sleppt honum.
Þá er æsi spennandi íslendingaslagur í Stoke og ekki verður minni spenna í Rome þar sem Roma og Lazio mætast.

Hérna eru leikirnir:
Blackburn - Birmingham
Fulham - Liverpool
Portsmouth - Charlton
West Ham - Middlesbrough
Stoke - Reading
Real Sociedad - Deportivo La Coruña
Roma - Lazio
Borussia Dortmund - Hamburg SV

Sendið tippið á mig í orvars@gmail.com eða setjið það í comment kerfið. Ég get því miður ekki uppfært síðuna frá fimmtudegi til mánudags því ég verð þá staddur í London. Ég mun þá setja mitt tipp á netið.

Þá er ég búinn að bjóða Eyrúni Magnúsdóttir dagskrágerðarkonu úr Kastljósi að vera fyrsta gestatipparann á þessu tímabili.

1 Comments:

Blogger Gaui said...

Uss... þetta var nú meiri skítaumferðin...

En Örvar fær prik fyrir að ná í gestatyppara...

24/10/05 15:36  

Skrifa ummæli

<< Home