miðvikudagur, maí 17, 2006

Örvar meistari "back to back"

Þá er loka umferðin búin í HIT vorið 2006. Ekki nema að þið viljið eina umferð í viðbót, skiptir mig engu. Endilega kommentið um það.

Örvar Steingrímsson er aftur meistari og held ég að það sé í fyrsta skipti sem það sé gert "back to back" eins og þeir orða það í Englandinu.

Örvar Steingrímsson er því HIT meistari vorið 2006 og einnig haustið 2005.
Eins og sést á þessari fallegu mynd vann Örvar þetta með yfirburðum. Strax í 5 umferð komst Örvar í fyrsta sætið og hélt því til enda. Glæsileg frammistaða hjá Örvari.

Hérna er svo staðan í öllum umferðunum.

Þannig að nú er bara spurning um að hittast í sumar og taka spil/póker og drekka verðlaunin mín. Hvað segja menn um það.

5 Comments:

Blogger Ingimundur said...

Til hamingju Örvar.

Ég held að það sé óþarfi að taka fleiri umferðir.

Lítur út að ég verði því miður ekkert á Íslandi í sumar.

kveðja, Ingimundur

17/5/06 14:51  
Blogger Gaui said...

Já til lukku Örvar, þú ert vel að sigrinum kominn.

Ég er að sleikja Arsenal sárin eftir úrslitaleikinn dramatíska, hvað á það að þýða að vísa Lehman af velli og svipta Barca markinu...
Hvar var hagnaðarreglan fyrir bæði liðin...

Fusss... Vonandi drepst þessi dómari sem fyrst.

Ég verð á landinu 8 júnín til 15 júlí.

kv
Gaui

17/5/06 22:59  
Blogger Hjalti said...

Sælir. Til hamingju Örvar, ég sé enga ástæðu til að spila fleiri umferðir, það þjónar engum tilgangi.
Gaman var að sjá Barcelona sigra Arsenal og áttu þeir það skilið, reyndar sammála þér Gaui, þessi dómari var alveg úti að aka.
Við verðum svo að plana einhvern hitting þegar sem flestir Hitarar eru á landinu. Over and out
hjk

17/5/06 23:22  
Blogger Longbottom said...

Ja til hamingju kall... vel af ser vikid.
Og til hamingju Arno med tina menn, eg vona ad tu hafir ekki endad i kanalnum eftir leikinn, einsog tu varst buinn ad hota.
Gaui, tu getur to huggad tig vid ad Henry er haettur vid ad haetta vid ad haetta!!
Eg kem heim a fimmtudaginn og verd ut agustmanud. Endilega ad hittast og drekka nokkra kalda yfir einhverjum godum HM leik.
mbk. ekth

19/5/06 10:48  
Blogger Sí-Atli said...

Hvernig fór svo hjá ykkur hlunkar? Hittust þið eitthvað eða eruð þetta innantóm orð?
Hvenær ferðu út Örlish?

7/8/06 00:01  

Skrifa ummæli

<< Home